Gestabók
31.12.2008 kl. 22:13
Frábær mynd
Sæll Gummi minn... varð bara að kíkja á myndina sem hún Eyrún teiknaði og verð bara að segja að hún er hreint út sagt frábær! Hún hefur hæfileika stúlkan :o) Knús og kram frá okkur öllum og við vildum svo gjarnan vera með ykkur í kvöld! Þín systir, Hildur
Hildur sys
9.12.2008 kl. 16:58
Til hamingju með afmælið mín elskulegasta og bestasta vinkona!
Solveig Ólöf Magnúsdóttir
9.12.2008 kl. 5:50
Afmaeliskvedjur :)
Vid oskum Kristinu innilega til hamingju med 50 ara afmaelid i dag. Knus og kossar.
Nina og Vince
Nina
10.11.2008 kl. 13:26
Já, kvitta !!
Alltaf gaman þegar fólk skrifar e-ð í gestabókina, þó ekki sé nema bara til að kvitta!! Takk fyrir það Nína mín. Og kvitta nú ...!!!
Gummi
9.11.2008 kl. 17:44
Kvitta!!
Eg lofadi ad kvitta svo her er thad, Kvitta!!
HA ha ha
Nina
7.9.2008 kl. 12:55
Til hamingju
Sæll Gummi
Rakst inn á þessa heimasíðu þína þegar ég fór inn á síðuna skagafjordur.
Byrja á því að óska ykkur til hamingju með giftinguna. Gaman að skoða þessa heimsíðu þína. Ég kem nú hugsanlega norður í Skagafjörð í Laufskálaréttina þá að sjálfsögðu kíki ég á bæjarstjórann.
Bestu kveðjur og hafðu það alltaf sem best.
RB-kveðja
Guðbr. Stígur
Guðbr. Stígur
20.4.2008 kl. 17:29
Hláturinn lengir lífið... takk Gummi
Sæll Gummi, ætlaði bara að þakka þér fyrir kommentið á heimasíðunni,.. hló mikið :o) Hvernig hafið þið það? Ég hringi nú í ykkur við tækifæri.. Knús og kremjur, Hildur sys
Hildur
11.4.2008 kl. 9:12
Hellú...
Hæ, var að skoða myndir sem ég hafði ekki séð áður... myndirnar þegar þið fóruð út að borða einhvern voðalega girnilegan mat!! :o) Fínar myndir. Hvernig hafið þið það annars, eru þið eitthvað að skríða saman?
Ástar og saknaðarkveðjur, Erla og co.
Erla Perla :o)
18.3.2008 kl. 23:23
kveðja
Hæ Kristín.
Þetta er aldeilis frábær heimasíða hjá ykkur. Mikið hefur þetta verið flott brúðkaup í sumar. Takk fyrir að fá að skoða myndir. Þær komu í kaffi í dag samkennarar okkar þær Magga Oddný og Svala við söknuðum þín.
Kær kveðja frá okkur Halldóra
Halldóra Árnadóttir
14.3.2008 kl. 10:08
Hrakfallabálkar....????
Hæ kæri bróðir, það er naumast að það ganga yfir ykkur óhöppin núna!! Ótrúlegt. Hvernig hafið þið það? Vildi bara láta ykkur vita, að við hugsum til ykkar og vonandi hafið þið það sem best, miðað við aðstæður! Knús og batakveðjur til ykkar allra frá okkur í Struer
Erla
1.3.2008 kl. 0:11
Kærar kveðjur
Sæl verið þið elskulega fjölskylda. Datt inn á þessa fagmannlegu síðu. Hjartanlega til hamingju með "brullaupið" myndirnar eu fallegar eins og fókið auðvitað ! - megi heill og hamingja fylgja ykkur. Farið vel með ykkur. Sjáumst á komandi sumri.
Jenta
25.2.2008 kl. 18:57
Smá kveðja
Sæll elsku Gummi... er búin að frétta hvernig afmælisdagurinn þinn endaði.. ekki gaman! Farðu nú vel með þig, og ekki hika við að fara til læknis, ef að þér fer að líða verr! Við sendum ykkur knus, kram og kys hér frá Tørresø :o)
Hildur sys
14.2.2008 kl. 15:34
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
Sæll kæri bróðir og innilega til hamingju með daginn. :o) Ég ætla að hringja í þig í kvöld, svo ég vona að þú sért heima. Var reyndar að heyra af biltunni þinni, leiðinlegt að heyra það en ég vona að þú sért nú allur að koma til. Heyrumst í kvella.
Ástar og saknaðarkveðjur
Erla
Erla perla
25.1.2008 kl. 22:07
Loksins....!!!!!!!!!!!!!!!
Hæ hvað segir fólkið....? Héðan allt sæmilegt að frétta. Er að fara að hringja í ykkur svo ég eyði ekki fleiri orðum hér.... :o)
Knús og kram frá Struerunum
Erla
16.1.2008 kl. 17:07
Bara að kíkka í "heimsókn"
Sæll Gummi minn. Ég ákvað að kvitta fyrir mig að þessu sinni. Tékka alltaf reglulega hvort þú ert búinn að blogga :o) Það er lítið að frétta héðan, ég bíð bara spennt eftir að byrja í vinnunni þann 21. jan... get varla beðið :o) Knús, kram og kys, þín systir Hildur
Hildur sys
4.1.2008 kl. 20:39
Gleðilegt nýtt ár
Ástar og saknaðar kveðjur frá okkur hér í USA með þökk fyrir yndislegar stundir á liðnu ári. Hittumst kanski í sumar eða þá bara plana saman næstu áramót!!! Það væri gaman. Flottar myndir hjá þér.
Knús til allra, njótið dagana saman.
Þín systir Nína.
PS Komin með íslensku stafina LOKSINS
Nína
17.11.2007 kl. 17:57
Glæsileg saman !
Sæl Kristín !
Birna gaf mér aðgang að síðunni ykkar til að skoða
brúðkaupsmyndirnar.
Glæsileg eruð þið saman og til hamingju.
Sjáumst vonandi í náinni ...
Heimir
Heimir Guðmundsson
30.10.2007 kl. 14:45
Heimkoma?
Sæll Gummi. Jæja, nú ert þú að öllum líkindum staddur í Køben og ég vona að þú náir að hvíla þig þar og jafna aðeins. Það var æðislegt að fá þig og Jón Guðna í heimsókn, þó að það hafi verið erfitt að fá ykkur hingað ;o) En endilega láttu okkur heyra hvernig þetta fer allt saman með bílaleigubílinn. Ástar- og saknaðarkveðjur frá okkur hér... til ykkar allra <3
Hildur sys
30.10.2007 kl. 10:05
Ævintýri?!!
Hæ Gummi, heyrði í gær hvernig þetta fór allt saman með bíl og annað á leið til Hildar. Leiðinlegt að svona skildi fara, ég vona bara að þú hafir það gott og komist heim sem fyrst. Þetta hefur greinilega verið ævintýraferð... vona að þetta fari allt vel. Þúsind þakkir fyrir heimsóknina til okkar, þetta var frábært. Ástar og saknaðarkveðjur,
Erla og co.
Erla og co.
26.10.2007 kl. 10:16
Hellú
Hæ gott fólk, ég kíki nú alltaf í heimsókn annað slagið. Eins og þið kannski sjáið, þá er ég að byrja með nýja bloggsíðu. Þar ætla ég aðalega að fjalla um mitt verðandi fyrirtæki Ranka :o) Ég vona að það rætist. En annars allt gott héðan, lokaverkefnið byrjar á mánudaginn.... er svolítið stressuð, en þetta verður fljótt búið :o) Knús og kremjur frá Struerunum
Erla
11.10.2007 kl. 10:12
Kveðja frá Tørresø
Sæll elsku Gummi. Sé að þú hefur ekki bloggað núna lengi,... kannski mikið að gera í vinnunni. Ég reyni alltaf að fylgjast aðeins með ykkur hér á síðunni og hef gaman af. Langaði bara að senda ykkur smá kveðju núna frá okkur hér í Baunaveldi. Knús til ykkar allra frá okkur hér <3
Hildur sys
9.10.2007 kl. 16:05
kveðja að austan
góð heimasíða gaman að skoða myndirnar og sjá hvað allir eru hamingjusamir kveðskapurinn góður hjá þér gummi
þór ragnarsson
27.8.2007 kl. 8:58
Hæ hó
Sæll elsku Gummi, þúsund þakkir fyrir falleg orð á heimasíðunni og takk fyrir síðast, þetta var rosalega gaman :) Vonum að þið hafið það gott á Króknum, knús og kremjur til allra í fjölskyldunni... tvö knús til Mola, mín fjölskylda talar enn um hvað hann sé æðislegur!! :)
Hildur sys
13.8.2007 kl. 7:41
Æðislegt
Hæ yndislega fjölskylda, það er alveg æðislegt að skoða myndirnar hjá ykkur, manni langar nú bara aftur á Flúðir :-) þetta var svo gaman og TAKK fyrir frábærar stundir saman. Þið verðið að fyrirgefa hversu seint við kvittum í gestabókina, en tölvan okkar var biluð og svo þegar tölvan kom í lag var ekkert internet!!! Tölvuvesen, alltaf hreint. ;-)Söknum ykkar og vonum að við hittumst fljótt aftur. Knús og kremjur frá Struer
Erla og co
1.8.2007 kl. 23:03
Til Hamingju !!!!!!!!!
Halló og innilega til hamingju með brúðkaupið elsku Kristín og Guðmundur. vá það er aldeilis lífleg heimasíða hjá ykkur hjónakornum maður þarf að gefa sér góðan tíma í að kíkja á allar myndirnar og atburðina í þessari stóru og glæsilegu fjölskyldu.
Hlökkum líka til að sjá ykkur og vonandi verður það sem fyrst.
Bestu kveðjur :)
Guffa, Ingólfur og stelpu stottin þrjú og jú auðvitað Dúddi frændi ykkar
Guffa, Ingólfur og co
31.7.2007 kl. 22:31
Hamingjuóskir
Elsku Kristín og Gummi.
Er búin að nota kvöldið til að skoða síðuna ykkar sem er ljómandi fín og fjölbreytt.
Þið takið ykkur vel út á brúðkaupsdaginn, svo sæt og hamingjusöm. Þið eruð ekkert smá heppin að eiga svona myndarleg börn. Gæfan fylgi ykkur mín kæru. Sjáumst vonandi áður en langt um líður.
Knús og kveðjur,
Þrúða.
Jarþrúður Ólafsdóttir
31.7.2007 kl. 12:34
Sæll Guðmundur ég var að skoða síðuna þína mjög skemtileg síða kv. Skarphéðinn
Skarphéðinn Guðmundsson
24.7.2007 kl. 14:02
Skemmtilegar myndir
Sæll Gummi. Ég var að skoða myndir frá því að þið voruð úti að borða öll saman, mjög skemmtilegar myndir :o) Hlakka til að sjá ykkur þegar við komum norður. Knús og kremjur héðan frá okkur <3
Hildur sys
6.7.2007 kl. 8:08
Til hamingju :o)
Hæ Gummi bró og fjölskylda... til hamingju með þennan stóra áfanga hjá Eyrúnu. Loksins skrifa ég nú í gestabókina hjá ykkur, kominn tími til ;o) er búin að vera að flakka um og skoða allar myndir, fullt af góðum og skemmtilegum myndum. Verð að koma oftar í heimsókn... Héðan allt gott að frétta eins og venjulega, knús og kremjur frá okkur í Struer
Erla :o)
26.6.2007 kl. 20:33
Hamingjuóskir
Sæll elsku Gummi og fjölskylda... Innilegar hamingjuóskir með dömuna, myndirnar eru æðislegar af henni! Knúsaðu hana frá okkur öllum hér. Ég sýndi mömmu myndirnar í dag, henni fannst mjög gaman að skoða þær :) Knús og kremjur frá rigningunni í Baunaveldi
Hildur sys
21.6.2007 kl. 12:20
Til hamingju með dótturina
Sæll Guðmundur. Til hamingju með dótturina. Sá myndir frá þessu hjá Steingrími. Skilaðu endilega kveðju til Eyrúnar. Kv. Kristinn
Kristinn Kristjánsson
23.2.2007 kl. 16:44
Ný heimasíða
Sæll Gummi... ég ætlaði bara að láta þig vita að við erum komin með nýja heimasíðu... í bili. Endilega kíkkið við, hin síðan verður ekki uppfærð að sinni. Knús og kremjur Hildur sys og co
Hildur sys
14.2.2007 kl. 6:37
Til hamingju með daginn!!°
Elsku Gummi, hjartanlegar hamingjuóskir í tilefni dagsins, ég vona að þú eigir eftir að hafa góðan dag í dag :D Ég prófa kannski að hringja til þín í kvöld. Knúsaðu familiuna frá okkur hér í Tommerup <3
Hildur sys igen
6.2.2007 kl. 17:36
Kveðja frá Tommerup
Hæ hæ... gaman að sjá þig hér á netinu, hvenær byrjar þú að blogga? ;) Skemmtilegar myndir hjá þér. Knús og kremjur til ykkar allra frá okkur hér í Tommerup
Hildur systir
Hjördís fermist

Hjördís fermdist þann 28. mars 2010. Þetta var stór dagur í hennar lífi og okkar allra. Í tilefni fermingarinnar var fyrst haldin lítil veisla heima í Birkihlíðinni sama dag en síðan stærri veisla næsta þriðjudag í Reykjavík. Er óhætt að segja að mikil gleði og hamingja ríkti þessar stundir og allir voru sáttir og sælir. Ekki síst fermingarbarnið (sem má víst ekki kalla barn lengur !) Fleiri myndir frá þessum stóru dögum er að finna í myndaalbúmi hér fyrir neðan og á http://www.picasaweb.com/gudmgudl
Grétar útskrifast úr 10. bekk