Myndaalbúm

Nýjustu albúmin

Næstu myndaalbúm:

Hjördís fermist 2010

Dagsetning: 17.03.2010

Fjöldi mynda: 2

Grétar útskrifast úr 10. be...

Dagsetning: 02.07.2009

Fjöldi mynda: 193

Jólin 2008

Dagsetning: 25.12.2008

Fjöldi mynda: 41

Skrekkur 2008 - 2. sætið !!

Laugalækjarskóli varð í 2. sæti Skrekks 2008 sem er glæsilegur árangur. Atriðið var rómað af öllum sem á horfðu. Grétar var sviðsmaður.Hann stendur framarlega lengst til vinstri með ljóst bindi á fyrstu mynd. Hinar myndirnar eru frá æfingu.

Dagsetning: 20.11.2008

Fjöldi mynda: 7

Vetrarríki í október 2008

Dagsetning: 26.10.2008

Fjöldi mynda: 35

Elfa og Gunni í Boston

Dagsetning: 03.10.2008

Fjöldi mynda: 10

Aðrir flokkar

2008

Fjöldi albúma: 13

Skoða albúm í flokki
2007

Fjöldi albúma: 13

Skoða albúm í flokki
2006 og eldra

Fjöldi albúma: 13

Skoða albúm í flokki

Hjördís fermist

Hjördís fermdist þann 28. mars 2010. Þetta var stór dagur í hennar lífi og okkar allra. Í tilefni fermingarinnar var fyrst haldin lítil veisla heima í Birkihlíðinni sama dag en síðan stærri veisla næsta þriðjudag í Reykjavík.  Er óhætt að segja að mikil gleði og hamingja ríkti þessar stundir og allir voru sáttir og sælir.  Ekki síst fermingarbarnið (sem má víst ekki kalla barn lengur !) Fleiri myndir frá þessum stóru dögum er að finna í myndaalbúmi hér fyrir neðan og á http://www.picasaweb.com/gudmgudl



Grétar útskrifast úr 10. bekk
Grétar er búinn með grunnskólann og stundar nú nám í MR. Hann lauk 10. bekk með 9,5 í meðaleinkunn hvorki meira né minna. Engin einkunn var undir 9 !! Hann skaut með þessu okkur öllum ref fyrir rass, systkinum sínum og foreldrum. Við erum öll afar stolt af drengnum. Einnig hlaut hann verðlaun fyrir mesta framför nemanda í námi og félagslífi. Hann vann lokaverkefni um DNA með góðum vinum og má finna það hér:http://www.laugalaekjarskoli.is/10/vor09dna/ Þau fengu 10 fyrir verkefnið, enda afar vel unnið.  Fleiri myndir frá útskriftinni má finna í myndaalbúmi hér fyrir neðan.

______________________________________________________________________________________________

Fyrstu jólin í Birkihlíð 37
Við héldum okkarfyrstu jól í Birkihlíðinni 2008. Þau voru þá hin "Stóru jól" en þaðköllum við jólin þegar börnin okkar beggja eru hjá okkur (öllnema Eyþór) en þannig er það önnur hver jól. Áttum við virkilega notalega jólahátíð saman. Það eru að sjálfsögðu börnin okkar sem sjá til þess að annað sé ekki hægt. Þessa skemmtilegu mynd teiknaði Eyrún af þeim saman á venslagrein en þau gáfu okkur myndina í jólagjöf. Frábær mynd og nær Eyrún svipmóti allra ótrúlega vel. Þau elstu, Jón Guðni og Elfa tróna efst, síðan koma Eyrún, Grétar og Hjördís. Í hópinn vantar í raun eitt barna Gumma, hann Eyþór Helga, hálfbróður þeirra Jóns Guðna, Eyrúnar og Grétars en hann kemur ekki til okkar um jól með sama hætti og þau hin sem skýrir það hvers vegna hann er ekki á þessari mynd. Þetta var síðan eins og hjá flestum hjá okkur þessi jól, fólk borðaði á sig gat og gefnar vorugóðar gjafir.

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 4
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 32051
Samtals gestir: 10123
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:33:54